Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Hćbb!

16. mars 2007 klukkan 13:28

Kemur eins og þruma úr heiðskýru lofti !!

Vil hvetja alla til að skella sér inná midi.is og kaupa sér miða á leiksýninguna


"Diskóið er dautt"

Sá þetta stykki um daginn og heldurbetur var það gott!!!! frábærir leikarar ;)

Kv,
AGM

Arnar Gauti Markússon
Engin athugasemd

Kennarar!

26. september 2006 klukkan 14:25
Sælir! Long time nó skrif.

Nú er svo komið að móðir mín og faðir eru að fara til útlanda í viku, sem er nú ekki frásögu færandi nema hvað, að við fáum pössun á meðan. Ég er að fíla mig eins og einhven 10ára gutta.
En það er nú ekkert slæmt pípól sem verður hjá okkur, enginn annar en maggi frændi, rannveig og strákarnir og litla barnið í bumbunni. :O

Við eigum eftir að eiga frábæra tíma, efast ekki um það. (thums up)

En það er nú ástæða fyrir þessu, þau eru heimilislaus meðan iðnaðarmennirnir halda áfram að svíkja þau um að afhenta  húsið sem er í smíðum og erum við mummi, því að aðstoða þau í þessum erviðleikum sínum. hehehe.

--------------------

En ég sit hér í tíma, nánar tiltekið TNT1024 - en við, nemendurnir, strákarnir - erum búnir að skora á kennarann okkar í golfi á fimmtd. og því sleppum við tíma meðan við förum í golfið. :D þá fær maður loksins respeckt í þessum skóla þar sem ég er svo fáááááááránlega góður í golfi! :O :D

--------------------


Höfum þetta ekki lengra í bili - svili

Arnar G.
Arnar Gauti Markússon
2 athugasemdir

Ţreyta

15. september 2006 klukkan 23:27
Játs, hér erum við, á þessu ferðalagi, að fylgjast að. - byrjun á nýjum texta, samið af sjálfum mér.

Mikil þreyta hefur einkennt sjálfan mig síðustu daga, summt tekur bara meiri toll heldur en annað...

Spilerí um helgina, hvað ætlar þú að gera?

Kv,
Arnar G
Arnar Gauti Markússon
1 athugasemd

- -

14. september 2006 klukkan 21:38
Lífið gengur sinn vanagang.

Ég er mikið búinn að stunda skóla, vinnu og ræktina.

Nú er að fara af stað smá törn hjá Svettband og þar af leiðandi verður eitthvað af hinu stundað minna.

Annars var ég að fá alveg hreint frábæra vinnu, er að fara í lífsleiknitíma í framhaldskóla landsins og kynna fyrir fólki Hitt Húsið og starfsemi þess - sem er mjög spennandi. - um að gera að hafa nóg fyrir stafni - :)

Ein stutt svona rétt fyrir vinnudagslok.

Kv,
Arnar G.
Arnar Gauti Markússon
Engin athugasemd

Átak - lífstíll

30. ágúst 2006 klukkan 23:31
Ég var að panta mér tíma í fitumælingu og einkatíma.

Ég vona svo sannarlega að elskulegi þjálfarinn verði góður við mig.

Ástæðan fyrir þessu er breyttur lífstíll, hjá mér. Ég hef verið að taka mig til síðustu daga, farið út að hlaupa, sund og borðað virkilega hollt. Og það er búið að vera heldurbetur gaman og gott.

Ég tek það fram að þetta er breyting á lífsstíl en ekki átak! - Þótt að það verði að sjálfsögðu tekið á!

Ég ætla mér svo að koma með einhverja reynslupunkta á síðuna sem ég vinn mér inn á meðan þessu stendur.





Svona ætla ég að líta út :D -

--------------------------------------

Ég horfði á magnakvikindið í gær - fannst hann svona lala.

Var búinn að bíða alveg til klukkan tvö eftir honum til að kjósa fyrir mömmu :), horfði á hann og svo steinsofnaði ég! Engin atkvæði frá mér til hans :O -

Fannst reyndar gaurinn sem var á undan honum - Luckas - ofurtöffari alveg hrylllingur!! Þessi maður - hann sýjast alveg inn í mínar fínustu!




Verður maður ekki bara pirraður á því að horfa á hann? -



Íslendingurinn okkar  - Iceman - Magnificen

Ekki lengra í bil !

AGM

Arnar Gauti Markússon
1 athugasemd

Skólinn og

29. ágúst 2006 klukkan 04:31
OOOOOfffboðslega er ég þreyttur!

Erilsamur dagur með meiru.

Skóli klukkann átta - búinn 10 - heim að kvíla mig - motorcross - svitabandið - Bað/sturta

Hver vorkennir ekki manni eins og mér? :)

- - - - - - - --

Nei sussumbía ! þetta var nú bara þrælfínn dagur!

Ég í góðu stökki!
- - - -- --- - - - -

Ótrúlegt alveg! Var mótorhjólast með ella og gassa, sem er nú ekki frásögu færandi, nema hvað. - Við vorum alllltaf á hausnum í dag - ég missti hjólið einusinni á hliðina og stýrið stakkst oní djöfullsins svæðið sem er 5 cm fyrir ofan lillamann - þvílík heppni - annars hefði greyið verið heeel aumt.

EKki lengra í bili -

Agm


Arnar Gauti Markússon
2 athugasemdir

Golf golf golf og aftur golf

25. ágúst 2006 klukkan 22:41
Jább, ég skellti mér í golf (samanber - að slá holu í höggi)í dag.

Lögðum af stað ég, BjöggHó, Kristján. Græni þarinn (passattinn hans bjögga) var notaður í að ferja liðið og golfsettinn, enda ekkert smá skott á kvikindinu!

Setbergsvöllur var það!

Ég stillti mér upp á fysta teig, smellti í kúluna - flaug - flaug og flaug - hola í höggi - mjöööööööööög leiðinlegt!!!!!

Svona gekk þetta allann hringinn og endaði með því að korkurinn (ég) setti vallarmet - 18 holur á 18 höggum - sem er alveg vel sloppið, fyrir svona byrjanda eins og mig.

Bjöggi og stjáni voru þarna eitthvað að drollast - bjöggi týndi "óvart" scorekortinu sínu á næst síðustu holu. Mjög grunsamlegt.

---------- - - - - - - -- - -


Að öðru

- ofboðslega væri gaman ef einhver gæti heimsótt þessa blessuðu síðu -

- ofboðslega væri gaman að fá einhver komment!

- ofboðslega væri gaman að gera eitthvað skemmtilegt um helgina, jafnvel fleiri golfhringi. Ef það er einhver sem þorir þá í mig!


Kveð í bili -

Arhnarh Göhtti Mharkhússon
Arnar Gauti Markússon
3 athugasemdir

Skólinn byrjađur og lífiđ er komiđ í fastar skorđur.

24. ágúst 2006 klukkan 16:44
Jæja ágæta fólk.

Fór sem fór, ég hef ekkert verið duglegur að blogga í sumar, enda hefur mitt sumar einkennst af gífurlegri dagskrá frá mánudegi til mánudags.

Ég fékk mer eitt stk. krossara, fór út til Benedorm (bene2006.tk), vinnan í Nítró.

Allt tók þetta sinn tíma, og nú er svo komið að sumarið er búið. Skólinn er byrjaður og er það upphaf vetrar í mínum augum.

Vetur þarf þó ekkert að vera það slæmur, mikið spilerí hjá bræðrum mínum og mér í Svitabandinu góða, skíði/bretti og þar með er það upptalið!

-------------------------------------------

Ofboðslega er dagurinn grár.

- kveð í bili -

ARnar G.



Nokkar hressar til að lýsa upp daginn - teknar af bene2006.tk -


Hér áttu að koma rosalegar myndir, en þetta kerfi er eitthvað fokkkt, svo þær eru og verða inná bene2006.tk :)
Arnar Gauti Markússon
Engin athugasemd

Vegna ...

08. maí 2006 klukkan 01:53
þess hve heitt ég þrái að fá að tjá mig, svo að alþjóð sjái, hef ég ákveðið að stofna til þessarrar frábæru blogsíðu!

FLott kerfi þetta bloggar.is!!!

Alskostar ánægður með þetta og mun áræðinlega blogga úr mér lífið á næstu dögum!

Ég er sammt sem áður ekki búinn í prófum og mun fyrsta blogfærslan mín "a real one" verða á morgun, þegar ég hef klárað ísl303 próf og skellt mér í nýju vinnuna mína NíTRÓ!!!!!


Yfir og út,
arnar g.
Arnar Gauti Markússon
4 athugasemdir